A A A
  • 1950 - Margrét Guðjónsdóttir
  • 1955 - Angantýr Valur Jónasson
Vífilsstaðir.
Vífilsstaðir.
« 1 af 3 »

Heilsuhæli fyrir berklasjúklinga tók til starfa á Vífilsstöðum.
„Vandaðasta og fullkomnasta byggingin sem til er á landinu,“ sagði í Lögréttu. Húsið var raflýst og lampi og hringingarhnappur við hvert rúm.
Yfirlæknir var Sigurður Magnússon.

Vífilsstaðaspítali var hannaður af Dýrfirðingnum Rögnvaldi Ólafssyni, einum af stofnendum Verkfræðingafélags Íslands. Lokið var við húsið á 16 mánuðum.

Rögnvaldur Ólafsson (5. desember 1874 – 14. febrúar 1917) var íslenskur arkitekt og húsameistari.

Hann var fyrsti Íslendingurinn sem nam byggingarlist og raunar fyrsti nútíma húsameistarinn sem Íslendingar eignuðust.


Rögnvaldur fæddist á Ytrihúsum í Dýrafirði. Faðir hans var Ólafur bóndi Sachariasson og móðir hans Veronika Jónsdóttir. Rögnvaldur byrjaði nám nokkuð gamall. Hann lærði undir skóla hjá Þorvaldi Jónssyni prófasti á Ísafirði.

Hann stundaði svo nám við Latínuskólann í Reykjavík. Þar hóf hann nám árið 1894 og var efstur námsmanna við útskrift árið1900 og útskrifaðist sem utanskólasveinn. Fjórum árum síðar sigldi hann til Kaupmannahafnar til að nema húsgerðalist og fékk til náms nokkurn stuðning af landsfé. Lagði hann sig þar um hríð af miklu kappi eftir því námi, en sem nokkuð leið, tók hann að kenna heilsubilunar, sem síðar átti eftir að draga hann til dauða. Ágerðist sjúkleiki hans svo mjög, að hann hélt aftur til Íslands árið 1904. Starfaði hann þar til hann lést á Vífilsstaðaspítala.

Eitt af þekktari verkum Rögnvaldar er Húsavíkurkirkja sem var vígð 2. júní 1907. Hún er krosskirkja, byggð úr norskum viði. Edinborgarhúsið á Ísafirði sem er timburhús reist 1907. Nokkur önnur verk hans voru: VífilsstaðaspítaliBíldudalskirkja, sem er steinhús og Þingeyrarkirkja sem er einnig steinhús og í gotneskum stíl.

 

 

Morgunblaðið 5. september 2015. - Dagar Íslands - Jónas Ragnarsson. 


« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30