30.01.2017 - 07:05 | bb.is,Björn Ingi Bjarnason,Orkubú Vestfjarða,Vestfirska forlagið
42 FENGU SAMFÉLAGSSTYRK FRÁ ORKUBÚINU
Afhending samfélagsstyrkja Orkubús Vestfjarða fór fram 25. janúar s.l. á þremur stöðum samtímis; á Ísafirði, Patreksfirði og á Hólmavík.
Orkubúinu bárust alls 82 styrkumsóknir og að þessu sinni voru veittir 42 styrkir að fjárhæð 3.425.000 kr.
Styrkupphæðirnar eru frá 50 þúsund kr. og upp í 150 þúsund kr. Orkubúið vill með styrkjunum sýna stuðning í verki við þá aðila og félög sem sinna ýmsum samfélagsmálum á Vestfjörðum. Og eins og sjá má á listanum hér fyrir neðan, getur verið um að ræða ýmiskonar starfsemi eða félagasamtök, svo sem björgunarsveitir, íþrótta- og æskulýðsstarf, menningarstarfsemi og listir, eða einhver önnur áhugaverð verkefni sem skipta máli fyrir vestfirskt samfélag.
Eftirtalin félagasamtök fengu styrk að þessu sinni:
- Björgunarsveitin Heimamenn: Björgunarstarf – búnaðarkaup 150 þús. kr.
- Ungmennafélagið Afturelding Reykhólum: Ungmennfélagsstarfsemi 50 þús. kr.
- Björgunarfélag Ísafjarðar: Björgunarstarf – búnaðarkaup 150 þús. kr.
- Blakdeild Vestra: Blak- búnaðarkaup 50 þús. kr.
- Edinborgarhúsið ehf: Hljóðkerfi 100 þús. kr.
- Golfklúbbur Ísafjarðar: Golf – unglingastarf 50 þús. kr.
- Handknattleiksdeild Harðar: Handknattleikur fámennar byggðir 50 þús. kr.
- Harmonikufélag Vestfjarða: Landsmót harmonikkuunnenda 50 þús. kr.
- Héraðssamband Vestfjarða 3 umsóknir: Fjölmenning (1), fámennar byggðir (2), barnastarf skíði (3) alls 200 þús. kr.
- Hollvinir skíðasvæðisins í Tungudal: Skíðasvæði fyrir byrjendur – töfrateppi 50 þús. kr.
- Knattspyrnudeild Vestra – yngri flokkar: Samstarf íþróttafélaga 50 þús. kr.
- Kvennakór Ísafjarðar: Landsmót kvennakóra 50 þús. kr.
- Rauða kross deildirnar á n Vestfjörðum: Búnaður til skyndihjálpar 100 þús. kr.
- Samgöngufélagið: Útvarpsendingar í jarðgöngum 50 þús. kr.
- Skíðafélag Ísafjarðar: Unglingalandsmót Íslands 100 þús. kr.
- Sunnukórinn: Kórstarf 50 þús. kr.
- Sæfari,félag áhugamanna um sjósport á Ísafirði: Námskeið fyrir unglinga 50 þús. kr.
- Tónlistarskóli Ísafjarðar: Hljóðfærakaup 75 þús. kr.
- Golfklúbbur Bolungarvíkur: Golf – unglingastarf 50 þús. kr.
- Heilsubærinn Bolungarvík: Körfuboltavöllur – útisvæði 100 þús. kr.
- Rafstöðin, félagasamtök: Rafminjasafn – uppbygging rafstöðvar 100 þús. kr.
- Sunddeild UMFB: Sunddeild – unglingastarf 50 þús. kr.
- Verslun Bjarna Eiríkssonar – Háaver ehf: Skipulag sýningar – saga verslunar 50 þús. kr.
- VáVest: Forvarnir 50 þús. kr.
- Björgunarsveitin Sæbjörg: Björgunarstarf – búnaðarkaup 150 þús. kr.
- Íþróttafélagið Grettir á Flateyri: Fimleikadeild – búnaður 50 þús. kr.
- Björgunarsveitin Björg Suðureyri: Björgunarstarf – búnaðarkaup 150 þús. kr.
- Íþróttafélagið Stefnir á Suðureyri: Útihreystitæki 50 þús. kr.
- Kvenfélagið Ársól: Varðveisla sögu Sóleyjar 100 þús. kr.
- Björgunarsveitin Blakkur: Björgunarstarf – búnaðarkaup 150 þús. kr.
- Golfklúbbur Patreksfjarðar: Golf – unglingastarf 50 þús. kr.
- Tónlistarskóli Vesturbyggðar: Hljóðfærakaup 75 þús. kr.
- Ungmennafélag Tálknafjarðar: Frjálsíþróttasvæði – uppbygging 75 þús. kr.
- Björgunarsveitin Kópur, Bíldudal.: Björgunarstarf – búnaðarkaup 150 þús. kr.
- Höfrungur leikdeild: Dýrin í Hálsaskógi 50 þús. kr.
- Kómedíuleikhúsið: Uppsetning á leikriti 50 þús. kr.
- Sjálfseignarstofnun Vélsmiðju Guðmundar J. Sigurðssonar: Eldsmíði – varðveisla þekkingar 50 þús. kr.
- Björgunarsveitin Dagrenning Hólmavík: Björgunarstarf – búnaðarkaup 150 þús. kr.
- Geislinn: Samstarf íþróttafélaga 50 þús. kr.
- Sauðfjársetur á Ströndum: Náttúrubarnaskóli 50 þús. kr.
- Skíðafélag Strandamanna: Gönguskíðaaðstaða 50 þús. kr.
- Björgunarsveitin Björg: Björgunarstarf – búnaðarkaup 150 þús. kr.