31.05.2013 - 05:56 | BIB
31. mái 1851 - Jón Sigurðsson, þá 39 ára, var kosinn forseti
Vestfirðingurinn Jón Sigurðsson, þá 39 ára, var kosinn forseti Kaupmannahafnardeildar Hins íslenska bókmenntafélags.
Forsetatitillinn festist við Jón, enda gegndi hann þessari stöðu til dánardags.
Hann var einnig forseti Alþingis um skeið.
Jón var fæddur 17. júní 1811 og sonur Sigurðar Jónssonar prests á Hrafnseyri við Arnarfjörð og Þórdósar Jónsdóttur, prestsdóttur frá Holti í Önundarfirði.
Morgunblaðið 31. maí 2013 - Dagar Ísalnds - Jónas Ragnarsson