26.10.2017 - 06:57 | Björn Ingi Bjarnason,Hallgrímur Sveinsson,Morgunblaðið,Vestfirska forlagið
26. október 1995 - Snjóflóð féll á Flateyri
Tuttugu manns fórust þegar snjóflóð féll úr Skollahvilft á byggðina á Flateyri við Önundarfjörð kl. 4.07 að nóttu þann 26. október 1995.
Strax eftir að flóðið féll tókst að bjarga sex mönnum á lífi og fjórum um hádegi. Hundruð manna tóku þátt í leit og björgun, en erfitt var að komast á staðinn vegna veðurs.
„Mannskæðustu náttúruhamfarir á landinu í manna minnum,“ sagði Tíminn.
Morgunblaðið - dagar Íslands - Jónas Ragnarsson.