A A A
  • 1926 - Jökull Sigtryggsson
  • 1946 - Katrín Eiríksdóttir
  • 1979 - Sólveig Eirný Sveinsdóttir
25.03.2019 - 10:31 |

240,4 m að gegnumbroti

Unnið við skeringar ekki langt frá munnanum
Unnið við skeringar ekki langt frá munnanum
« 1 af 4 »

Í viku 12 voru grafnir 70,0 m í göngunum Dýrafjarðarmeginn auk 18,5 m í neyðarrými, samtals 88,5 m. Lengd ganganna í Dýrafirði var í lok vikunnar 1.403,0 m sem er 85,4 % af leggnum sem er eftir og er búið að grafa í heildina 95,5 % af göngunum. Eru núna 240,4 m að gegnumbroti.

 

Í vikunni var útskot I klárað. Grafið var í basalti og þunnu setlagi. Efni úr göngunum var keyrt beint í veg fyrri part vikunnar en seinni part vikunnar var efninu keyrt á lager til seinni nota.

Í göngunum Arnarfjarðarmeginn var mannskapur í fríi og því engin vinna í gangi þar.

 

Í vegagerð Dýrafjarðarmegin var haldið áfram með sömu vinnu og verið hefur í gangi undanfarið þ.e. grjótröðun og vinnslu efnis úr Nautahjallanámu og mokstur úr skeringu en efnið úr henni hefur farið í vegfyllingu og fláafleyga.

 

Í Dýrafirði var efni úr göngunum notað til að hækka vegfyllingarnar næst munnanum ásamt því að unnið var við skeringar en efninu úr henni fór í fláafleyga. Byrjað var á jarðvinnu við vegskálann í Dýrafirði.

 

Á meðfylgjandi myndum má sjá unnið við skeringar ekki langt frá munnanum, stafn í göngunum tilbúinn fyrir þvott og mælingu á klöpp þar sem fyrstu sökklar vegskálans í Dýrafirði eiga að koma.

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30