20.07.2015 - 20:32 | Morgunblaðið,BIB
20. júlí - Íþróttamaður dagsins - Hermann Gunnarsson
Dýrfirðingurinn Hermann Gunnarsson skoraði bæði mörk íslenska landsliðsins í knattspyrnu þegar það sigraði Noreg, 2:0, í vináttulandsleik á Laugardalsvellinum 20. júlí 1970.
• Hermann fæddist 1946 og lést 2013. Hann lék með Val frá 1963 til 1981 en einnig hálft ár með Eisenstadt í Austurríki og eitt tímabil sem spilandi þjálfari ÍBA á Akureyri.
Hermann varð þrisvar markakóngur efstu deildar og er fimmti markahæstur í deildinni frá upphafi með 95 mörk.
Hermann lék 20 landsleiki og skoraði 6 mörk.
Þá lék hann einnig 4 landsleiki í handknattleik þar sem hann gerði m.a. 17 mörk í leik gegn Bandaríkjunum árið 1966.
Morgunblaðið mánudagurinn 20. júlí 2015.