A A A
  • 1950 - Margrét Guðjónsdóttir
  • 1955 - Angantýr Valur Jónasson
18.01.2015 - 22:05 | Björn Ingi Bjarnason

18. jan. 2015 - Afmælisbarn dagsins- Bergur Torfason

F.v.: Bergur Torfason frá Felli, Jón Guðjónsson frá Veðrará (látinn) Ásvaldur Guðmundsson frá  Ástúni og Hilmar Pálsson frá Suðureyri. Ljósm.: BIB
F.v.: Bergur Torfason frá Felli, Jón Guðjónsson frá Veðrará (látinn) Ásvaldur Guðmundsson frá Ástúni og Hilmar Pálsson frá Suðureyri. Ljósm.: BIB

Meðal afmælisbarna dagsins er Bergur Torfason frá Felli í Dýrafirði.
Hann er fæddur þann 18. janúar 1937.
Hann hefur alla tíð verið mjög liðtækur í félagsmálum og í ljósi þess er meðfylgjandi mynd birt sem kom uppí hendur skrásetjara í dag. Mynd frá héraðsþingi H.V.Í.  að Núpi í Dýrafirði á níunda (1984-?) áratugi síðustu aldar:
Þessir miklu félagsmálamenn fyrir vestan hafa aldrei verið með ræðukvíða enda hlaðnir ungmennafélagsanda.
F.v.: Bergur Torfason frá Felli, Jón Guðjónsson frá Veðrará (látinn) Ásvaldur Guðmundsson frá  Ástúni og Hilmar Pálsson frá Suðureyri.


Bergur Torfason kvað í lok afmælisdagsins 18. jan.  2015

 

Er á áliðnum degi inn á "fésið" ég fer, 
og finn ykkar hug sem í kveðjunum er, 
hann yljar og kætir minn anda í senn, 
alúðar þakkir, jafnt konur og menn.

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30