18. jan. 2015 - Afmælisbarn dagsins- Bergur Torfason
Meðal afmælisbarna dagsins er Bergur Torfason frá Felli í Dýrafirði.
Hann er fæddur þann 18. janúar 1937.
Hann hefur alla tíð verið mjög liðtækur í félagsmálum og í ljósi þess er meðfylgjandi mynd birt sem kom uppí hendur skrásetjara í dag. Mynd frá héraðsþingi H.V.Í. að Núpi í Dýrafirði á níunda (1984-?) áratugi síðustu aldar:
Þessir miklu félagsmálamenn fyrir vestan hafa aldrei verið með ræðukvíða enda hlaðnir ungmennafélagsanda.
F.v.: Bergur Torfason frá Felli, Jón Guðjónsson frá Veðrará (látinn) Ásvaldur Guðmundsson frá Ástúni og Hilmar Pálsson frá Suðureyri.
Bergur Torfason kvað í lok afmælisdagsins 18. jan. 2015
Er á áliðnum degi inn á "fésið" ég fer,
og finn ykkar hug sem í kveðjunum er,
hann yljar og kætir minn anda í senn,
alúðar þakkir, jafnt konur og menn.