16. júlí 2015 – Hafliðadagurinn í Bókakaffinu á Selfossi
Í gær voru 80 ár liðin frá fæðingu alþýðulistamannsins Hafliða Magnússonar frá Bíldudal en hann var fæddur í Hergilsey á Breiðafirði þann 16. júlí 1935. Hafliði bjó á Selfossi rúman síðasta áratuginn og lést þar þann 25. júní 2011.
Í minningu Hafliða Magnússonar komu saman í gær, í Bókakaffinu á Selfossi, nokkrir vina hans og samferðamenn og heiðruðu minningu listamannsins.
Þetta voru þeir:
Björn Ingi Bjarnason á Eyrarbakka
Bjarni Harðarson á Selfossi
Kristján Runólfsson í Hveragerði
Jóhann Páll Helgason á Selfossi
Siggeir Ingólfsson á Eyrarbakka
Elín Gunnluagsdóttir á Selfossi
Victor Gunnarsson á Selfossi
og sérstakir gestir voru:
Pálmi Jónsson á Akri, f.v. landbúnaðarráðherra
og Ómar Ragnarsson í Hveragerði.
Meðal annars las Kristján Runólfsson upp úr óútgefinni bók sinni, sem er nafnlaus eins og er.
Er það bók með allskyns þjóðlegum fróðleik, efnið í henni er hvergi til á prenti.
Vestfirska forlagið á Þingeyri var bakhjarl samkomunnar og fengu allir tvær bækur Hafliða Magnússonar að gjöf frá forlaginu.
Það voru bækurnar; Saltstorkin bros og Engill ástarinnar.
Menningar-Staður færði til myndar.
Myndaalbúm hér á Menningar-Stað.
Smella á þessa slóð: http://menningarstadur.123.is/photoalbums/273394/
Björn Ingi Bjarnason
á Eyrarbakka.