15% fjölgun íbúa á Þingeyri
Viðbót, 14. janúar: Við höfum fengið ábendingu þess efnis að rökstuddur grunur sé um að þessar tölur séu ekki alveg í takt við raunveruleikann. Takið því vinsamlegast eftirfarandi frétt með fyrirvara.
Sagt var frá því á héraðsfréttamiðlinum Bæjarins Besta að Vestfirðingum hafi fjölgað um 1% á árinu 2018 og er íbúafjöldi fjórðungsins kominn yfir 7000. Mest varð fjölgunin í Ísafjarðarbæ. þar fjölgaði íbúum um 91. Næstmest fjölgun varð í Tálknafjarðarhreppi, en þar fjölgaði um 14 manns. Þá fjölgaði um 8 manns í Bolungavík og líka í Súðavík.
Þetta eru auðvitað ánægjulegar fréttir, en stóru fréttirnar hljóta að vera þær að sé litið til einstakra þéttbýlisstaða varð fjölgunin mest á Þingeyri árið 2018, sé að marka frétt Bæjarins Besta. íbúum á Þingeyri virðast hafa fjölgað úr 244 í 281, en samkvæmt reiknimeisturum þýðir það að það var hvorki meira né minna en 15% fjölgun.
Ekki fjölgaði alls staðar í fjórðungnum, en í Vesturbyggð fækkaði um 26 manns og um 16 manns í Reykhólahreppi. Fækkun varð í öllum sveitarfélögum í Strandasýslum. íbúum fækkaði þar um 11 manns og eru íbúar sýslunnar nú 592.