11.01.2018 - 06:45 | Björn Ingi Bjarnason,Hallgrímur Sveinsson,Morgunblaðið,Vestfirska forlagið
1.000 efnamestu eiga nær allt
Tiltölulega fáir eiga nær allt eigið fé einstaklinga í íslenskum fyrirtækjum, samkvæmt samantekt Creditinfo fyrir ViðskiptaMoggann.
1.000 manns eiga þannig rúmlega 98% alls eigin fjár sem er í eigu einstaklinga. Ennfremur sést þegar rýnt er í tölurnar að 10 eignamestu einstaklingar landsins eiga tæplega þriðjung alls eigin fjár í íslenskum félögum, sem er í höndum einstaklinga.
Samkvæmt samantektinni, sem um er fjallað í ViðskiptaMogganum í dag, er hlutur einstaklinga í eigin fé allra íslenskra fyrirtækja um 1.200 milljarðar króna.
Morgunblaðið 11. janúar 2018.