A A A
  • 1981 - Berglind Hrönn Hlynsdóttir
15.11.2017 - 06:51 | Vestfirska forlagið,Sigríður J. Valdimarsdóttir,Hollvinir Núpsskóla,Hallgrímur Sveinsson,Björn Ingi Bjarnason

-NÚPSSKÓLI Í DÝRAFIRÐI- UNGMENNA OG HÉRAÐSSKÓLI 1907-1992

Bók með þessu nafni kom út síðastliðið sumar, 110 árum frá upphafi skólans. Hollvinir Núpsskóla gáfu út. Bókinni hefur nú verið dreift til áskrifenda.

Í bókinn er rakinn aðdragandi og aðstæður stofnunar Núpsskóla í samhengi við aðra framvindu og stofnun annnarra alþýðskóla 19. og 20. aldar. Rakin er aðkoma frumkvöðlanna, sérstaklega sr. Sigtryggs Guðlaugssonar, Sigurðar Þórólfssonar, Guðmundar Hjaltasonar, Jónasar Jónssonar og Ásgeirs Ásgeirssonar.

Saga Núpsskóla er sögð eftir tíð hvers skólastjóra og ytri aðstæðum í löggjöf og fræðslumálum almennt. Aðalhöfundur er Aðalsteinn Eiríksson en meðhöfundar kennara- og nemendatals eru Pétur Garðarsson og Ásta Valdimarsdóttir. Allmargar myndir og talnaefni og varðveitt skólaspjöld eru birt í bókinni.

Bókin er hönnuð og prentuð í Prentmet ehf. , 424 blaðsíður í stóru broti (21x29 cm) og kostar kr. 14.000. Upplagið er 500 eintök.

Stjórn Hollvina annast dreifingu og sölu bókarinnar í gegnum heimasíðu félagsins, Núpsskóli.is. Andvirði bókarinnar að frádregnum útgáfukostnaði verður varið til þess að hlynna að minjum skólastarfsins á Núpi.

Aðrar upplýsingar um afhendingu eða greiðslukjör er að fá í eftirtöldum símanúmerum:
894 4310 (Steinar),
697 5844 (Sigríður)
og 860 2559 (Aðalsteinn). 




« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30