12.10.2010 - 13:57
Sandra Lovísa og Sigurða Kristey Pétursdætur
Systurnar Sandra Lovísa og Sigurða Kristey eru dætur Sigurðu Kristínar Leifsdóttur og Péturs Þórs Erlingssonar. Sandra Lovísa er eldri, hún fæddist 30. apríl 2009 á Landspítalanum og var 4.470 gr og 51,5 cm við fæðingu. Sandra var skírð í Reynivallarkirkju í Kjós þann 23. maí 2009. Yngri systir Söndru heitir Sigurða Kristey og er fædd á Landspítalanum 24. júní 2010. Hún vó 3.710 gr við fæðingu og var 50,5 cm. Sigurða Kristey var skírð í Hrafnseyrarkirkju þann 8. ágúst 2010.