A A A
  • 2012 - Freyja Dís Hjaltadóttir
25.05.2016 - 20:20 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson

Kristín Dahlstedt: - Brautryðjandi úr Dýrafirði sem gerði garðinn frægan

« 1 af 3 »

Fyrir nokkrum árum kom út hjá Vestfirska forlaginu endurútgáfa æfiminninga Kristínar Dahlstedt, veitingakonu, sem fyrst kom út árið 1961 og vakti mikla athygli. Var það Hafliði Jónsson frá Eyrum í Patreksfirði og fyrrum garðyrkjustjóri Reykjavíkur, sem skráði ævisögu Kristínar er þá var orðin 85 ára.

 

Saga Kristínar er nú talin í hópi merkustu ævisagna kvenna, sem komið hafa út hérlendis, enda brautryðjandi um margt á fyrri hluta síðustu aldar. Hún stundaði sjálfstæðan veitingarekstur í hálfa öld, ekki síst við Laugaveginn í Reykjavík og oftast undir fjallkonunafninu.

 

Kristín fæddist í Dýrafirði árið 1876 og ung hélt hún til Danmerkur frá Þingeyri með kútternum Daníu. Þá átti hún að baki ástarævintýri með skáldinu frá Þröm – Magnúsi Hjaltasyni, sem Halldór Laxness gerði ódauðlegan sem Ólaf Kárason Ljósvíking í skáldsögunni Heimsljósi. Hún sleit sambandinu þegar Magnús treysti sér ekki til að leggja út fyrir trúlofunarhringjunum.

 

Í Danmörku lærði Kristín margt um hótel- og veitingarekstur.  Reynslunni ríkari kom hún aftur til Íslands árið 1905 og réðst strax til starfa á nýreistu glæsihóteli við Austurstræti – Hótel Reykjavík. Það hótel brann í brunanum mikla árið 1915. Fljótlega stofnaði Kristín svo sinn eigin veitingastað að Laugavegi 68 sem strax öðlaðist miklar vinsældir.

 

Kristín vakti fljótt athygli í bænum, þótti glæsilega klædd og ekki skorti hana kjarkinn. Stundum eldaði hún grátt silfur við embættismenn, ekki síst lögregluna, á ýmsu gekk í viðskiptum við hina og þessa athafnamenn og reksturinn var upp og ofan.  Mörg áföll í einkalífinu dundu yfir. Bræður hennar dóu ungir, hún missti sambýlismann og síðar einkadóttur og oft voru samskiptin við karlkynið brösótt. En alltaf reis Kristín upp aftur.

 

Þegar hún var að velja nafn á veitingastað sinn, dreymdi hana fjallkonuna, þegar hennar gamli unnusti, Magnús Hjaltason, vitjaði hennar í draumi. Fjallkonunafnið fylgdi henni síðan. Þegar mest var umleikis, flutti Kristín inn danska tónlistarmenn til að leika á veitingastöðum sínum og hún keypti bifreiðar til að stunda akstur milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur.

 

Kristín varð 92 ára og í lok ævisögu sinnar segir hún:  „Ég hef ekki þurft að vísa svöngum frá húsdyrum mínum. Það hefur verið mín lífsgleði. Þess vegna get ég litið glöð yfir farinn veg og verið sátt við bæði Guð og menn”.

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30