A A A
  • 1926 - Jökull Sigtryggsson
  • 1946 - Katrín Eiríksdóttir
  • 1979 - Sólveig Eirný Sveinsdóttir
03.07.2011 - 23:14 | bb.is

Zurgur frumsýnir Dýra og félaga

Zurgur flytur Dýra og félaga á Víkingasvæðinu á Þingeyri.
Zurgur flytur Dýra og félaga á Víkingasvæðinu á Þingeyri.
Nýtt leikhús, Zurgur, hefur verið stofnað á Þingeyri. Að leikhúsinu koma 10 krakkar á aldrinum 13-16 ára. Leikhúsið er í samstarfi við vinnuskólann, krakkarnir vinna hálfan daginn við að fegra bæinn en hálfan daginn vinna þau við leikhúsið. Krakkarnir ætla að frumsýna nýtt íslenskt leikrit sem nefnist Dýri og félagar í grillveislunni á Dýrafjarðardögum um helgina. Leikritið er 25 mínútna langt og fjallar um Dýra landnámsmann og aðra sem settust að í Dýrafirði. Það er Elfar Logi Hannesson hjá Kómedíuleikhúsinu sem samdi leikritið í samstarfi við krakkana. Að sögn Elfars Loga er mikil stemmning í hópnum en þau hafa unnið hörðum höndum við að koma verkinu saman enda byrjuðu þau aðeins að æfa í síðustu viku. „Þingeyringar geta verið stoltir af æskunni sinni", segir hann.

 

Leikritið verður sýnt á víkingasvæðinu á Þingeyri þrisvar í viku í júlí, mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga klukkan hálfníu. Aðgangur er ókeypis.

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30