A A A
  • 1935 - Soffía Einarsdóttir
04.05.2015 - 18:17 | Vestfirðingafélagið

Vorferð Vestfirðingafélagsins

Hvalsneskirkja.
Hvalsneskirkja.

Það hefur skapast sú hefð að félagar í Vestfirðingafélaginu og gestir þeirra leggi land undir hjól á vorin og andi að sér fersku vorloftinu. Að þessu sinni verður farið um Reykjanesið laugardaginn 9. maí 2015.

Fyrsti viðkomustaður verður Kálfatjarnarkirkja á Vatnsleysuströnd. Þaðan verður ekið í Reykjanesbæ og snædd súpa einhvern staðar í hádeginu. Þetta er hugsuð fjölskylduferð og þess vegna verður fjaran skoðuð og farið í leiki. 

Ekið verður síðan að Hvalsneskirkju og fræðst um Hallgrím Pétursson. Flekamótin og Gunnuhver verða barin augum á Reykjanestá.

Ferðina endum við svo með því að snæða kvöldverð í Salthúsinu í Grindavík áður en við ökum heim. Suðurnesjamaður, Jakob Sigurðsson, ætlar að fræða okkur í þessari vorferð félagsins og fararstjóri verður Sigurbjörg Björgvinsdóttir.


Lagt verður af stað frá Fannborg 8 (Gjábakka) kl. 9.00 og komið til baka um kl. 20.00

Verðið er kr. 10.000.- fyrir fullorðna og kr. 5.000.- fyrir börn
Innifalið er: Allur akstur, súpa í hádeginu, kvöldverður, leiðsögn og fararstjórn.

Skráning er hjá Hauki og Sigurbjörgu í síma 554 3774 og Hrund í síma 892 4713 eða netfangið hrundyr@gmail.com


Vestfirðingafélagið

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31