A A A
  • 1935 - Soffía Einarsdóttir
17.08.2015 - 19:44 | Hallgrímur Sveinsson

Viagra karamellum úthlutað í smalamennskum!

Gunnlaugur Sigurjónsson Fellabiskup til hægri og séra Tómas Jónsson í sömu sókn.  Tómas var einhver allra besti smali hér um slóðir og kunni til verka í því eins og öðru sem hann tók sér fyrir hendur. Munum við minnast hans síðar. Sigríður  Guðrún Steinþórsdóttir, eiginkona Tómasar í baksýn. Ljósm.: H. S.
Gunnlaugur Sigurjónsson Fellabiskup til hægri og séra Tómas Jónsson í sömu sókn. Tómas var einhver allra besti smali hér um slóðir og kunni til verka í því eins og öðru sem hann tók sér fyrir hendur. Munum við minnast hans síðar. Sigríður Guðrún Steinþórsdóttir, eiginkona Tómasar í baksýn. Ljósm.: H. S.
« 1 af 2 »

Frétt dagsins fyrir 11 árum:

Þann 2. október 2004 mátt lesa eftirfarandi frétt á Þingeyrarvefnum:

 

Það gleymdist að geta þess í fréttabréfi úr Vestfirsku Ölpunum um daginn sem satt er, þó oft megi satt kyrrt liggja, að í upphafi smalamennsku í umdæminu Brekkudalur að Kirkjubólsdal, var úthlutað karamellum, 2-3 á mann, allt eftir því hvernig á stóð og hefur svo verið um nokkurt skeið.

   Þessi siður er ættaður úr Arnarfirði og hefur þótt gefast vel þar. Þetta er gert til að smalarnir verði brattgengari, léttari á sér, kraftmeiri og ánægðari með lífið á fjöllum og dölum.

   Gunnlaugur Fellabiskup taldi að hér væri um Viagra karamellur að ræða, eða jafnvel þær nýjustu, svokallaðar Víkara karamellur og var því ekki mótmælt. Ráðlagði hann mönnum að geyma að minnsta kosti eina karamellu þangað til þeir kæmu heim og þótti það gott ráð.

   Að öðru leyti er frá því að segja í sambandi við smalamennskur í Vestfirsku Ölpunum að þar hefur verið smalað og smalað og er þar ekkert lát á. Kveður svo rammt að þessu að nú eru menn jafnvel farnir að smala tófum með sauðfénu. Ein hvít lágfóta smalaðist með fénu af Hrafnseyrardal í dag, 2. október og voru mörg vitni að því.

   Og svo má ekki gleyma að geta þess, að Sigrún á Kirkjubóli og smalar hennar, að ógleymdum hinum ómetanlega smalahundi, Fjólu, sem fer í kletta og allt hvað eina til að sækja fé, komu með að minnsta kosti 4 útigöngukindur af hinu svokallaða Veturlandafjalli, inn af Skeggjanum í Arnarfirði. Voru þær að sögn mjög vel útlítandi eftir slarkið í vetur.  

 

Hallgrímur Sveinsson.

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31