A A A
  • 1949 - Guðberg Kristján Gunnarsson
  • 1962 - Unnur Cornette Bjarnadóttir
27.11.2014 - 23:45 | Vestfirska forlagið,Björn Ingi Bjarnason

Vestfirska metið í Sunnlenska bókakaffinu á Selfossi slegið í kvöld

Sunnlenska bókakaffið á Selfossi í kvöld, 27. nóvember 2014. Ljósm.: Guðmundur Karl Sigurdórsson.
Sunnlenska bókakaffið á Selfossi í kvöld, 27. nóvember 2014. Ljósm.: Guðmundur Karl Sigurdórsson.
« 1 af 2 »

Það var staðið út úr dyrum á upplestrarkvöldi í Sunnlenska bókakaffinu á Selfossi í kvöld, 27. nóvember 2014, þegar sjö höfundar lásu upp úr nýjum ritverkum.

Upplestrarkvöldin hafa notið mikilla vinsælda á undanförnum árum og skipa fastan sess hjá mörgum bókaunnendum. Að sögn Bjarna Harðarsonar, bóksala, hafa þó aldrei fleiri mætt en í kvöld.

„Hér var hið svokallaða vestfirska met slegið, en gamla metið var sett á Vestfirðingakvöldi Vestfirska forlagsins á Þingeyri fyrir nokkrum árum þar sem 67 gestir mættu. Í kvöld hlýddu hins vegar 69 manns á upplesturinn og nánast allir fengu sæti. Þetta var mjög vel heppnað,“ sagði Bjarni en upplestrarkvöldin verða alla næstu fimmtudaga til 18. desember.

Í kvöld lásu Kristín Steinsdóttir úr nýrri bók sinni Vonarlandið, Guðrún Guðlaugsdóttir úr spennusögunni Beinahúsið, Jóhanna S. Hannesdóttir úr bók sinni 100 heilsuráð til langlífis, Ófeigur Sigurðsson úr bók sinni Öræfi, Bjarni Harðarson úr Króníku úr Biskupstungum, Finnbogi Hermannsson úr bókinni Illur fengur og Margrét Þ. Jóelsdóttir úr bókinni Ódáinsepli.

 

wwww.sunnlenska.is greinir frá

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31