A A A
26.05.2015 - 06:17 | BIB

Vestfirðir í stórsókn

VIð fossinn Dynjanda í Arnarfirði. Ljósm.: BIB
VIð fossinn Dynjanda í Arnarfirði. Ljósm.: BIB
Markaðsstofa Vestfjarða ásamt sveitarfélögunum á Vestfjörðum og ferðaþjónustuaðilum á svæðinu eru að fara af stað með stærsta markaðsátak sem sveitarfélögin hafa farið í. Vestfirðingar hafa aldrei verið þekktir fyrir að byrja smátt eða hafa hljótt og það á svo sannarlega við í þessu tilfelli enda er þetta þriggja ára verkefni sem snýr að því að vekja athygli á Vestfjörðum sem áfangastað ferðamanna.

Átakið sem um ræðir er persónustýrt markaðsátak þar sem áhorfandinn getur sett saman sína draumaferð um Vestfirði. Langar þig að slappa af í heitu pottunum í fjörunni á Drangsnesi, horfa fram af Látrarbjargi eða heimsækja tónlistasafnið Melódíur minninganna? Nú getur þú prófað þetta allt saman og meira til.

Þeir sem setja saman og deila sinni draumaferð um Vestfirði á Facebook eru síðan komnir í pott og geta fengið sýna draumaferð uppfyllta. Slíkt er ekki hægt að gera án dyggrar aðstoðar frá frábærum samstarfsaðilum, en auk vestfirskra ferðaþjóna eru með okkur í verkefninu Icelandair, Flugfélag Íslands, Hertz, N1 og Síminn


Verkefnið er unnið með framleiðsufyrirtækinu Tjarnargatan og hafa þeir eytt síðasta eina og hálfa árinu í undirbúning og tökur um alla Vestfirði. Strákarnir hjá Tjarnargötunni hafa gengið fjöll og firði, ferðast um 9.000 km í tengslum við þetta verkefni og tekið upp 10tb af efni.

Verkefnið er nú orðið aðgengilegt inn á vef Markaðsstofu Vestfjarða www.vestur.is  og hvetjum við alla til að hefjast handar og setja saman sína draumaferð.

Af www.litlihjalli.is





« Nóvember »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30