A A A
10.11.2008 - 21:51 | JÓH

Vel heppnað Hjónaball

Camilla Sigmundsdóttir var annar heiðursgesta á Hjónaballinu. Mynd: Erna Höskuldsdóttir
Camilla Sigmundsdóttir var annar heiðursgesta á Hjónaballinu. Mynd: Erna Höskuldsdóttir
Hjónaballið fór fram í 74. sinn um nýliðna helgi. Um 120 manns voru saman komnir í sínu fínasta pússi í Félagsheimilinu á Þingeyri og gerðu sér glaðan dag. Að sögn Ernu Höskuldsdóttur, formanns Hjónaballsnefndar í ár, var almenn ánægja með ballið og þóttu Jóhannes Oddur matreiðslumeistari og Benedikt Sigurðsson veislustjóri, leysa verkefni sín einstaklega vel af hendi. Sérstakir heiðursgestir á ballinu voru Camilla Sigmundsdóttir og Knútur á Kirkjubóli en þau eru bæði á tíræðisaldri og hafa mætt oftar á Hjónaball en nokkur annar. Fleiri myndir frá Hjónaballinu eru væntanlegar á myndasíðuna á næstu dögum
« Nóvember »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30