A A A
  • 1935 - Soffía Einarsdóttir
08.03.2015 - 20:21 | BIB

„Veggir úr sögu kvenna".

Safnahúsið á Ísafirði.
Safnahúsið á Ísafirði.
Á morgun, mánudaginn 9. mars 2015 kl. 17 opnar sýningin „Veggir úr sögu kvenna". “ í Safnahúsinu á Ísafirði. Um er að ræða farandsýningu Kvenréttindafélags Íslands í tilefni þess að í ár eru 100 ár liðin frá því að íslenskar konur fengu kosningarétt.


Sýningin kemur frá Norska húsinu í Stykkishólmi en hóf för sína í Snorrastofu í Reykholti og mun síðan fara á Blönduós, Akureyri, Húsavík, Egilsstaðir, Höfn í Hornafirði, Vestmannaeyjar, Árborg, Reykjanesbæ og ljúka för sinni í Reykjavík í desember. Kolbrún Anna Björnsdóttir er hönnuður sýningarinnar og Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir samdi textann og þýddi.


Við opnun sýningarinnar verður boðið upp á dagskrá með ávörpum og fyrirlestrum auk kaffiveitinga í boði kvenfélaganna Hlífar og Hvatar.

Allir velkomnir. 


Sýningin er sett upp í samstarfi við sveitarfélögin á landinu. Hún hefur verið styrkt af velferðarráðuneytinu, Framkvæmdanefnd um 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna, Frakt.is og TVG – Zimsen.

 

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31