08.12.2015 - 06:32 | Hallgrímur Sveinsson
Upp með húmorinn í skammdeginu! - Allir vita það
Guðbjartur Jónsson á Flateyri stofnaði og rak lengi hið ágæta öldurhús
Vagninn á Flateyri. Guðbjartur, öðru nafni Vagnstjórinn, er hinn
mesti dugnaðarforkur. Hann er frægur fyrir mismæli og ambögur sem
velta út úr honum.
Eitt sinn var Vagnstjóranum mikið niðri fyrir þegar hann var að
ræða við félaga sína um spillingu á Íslandi. Einkum varð honum tíðrætt
um Hannes Hólmstein Gissurarson og sagði þann fýr aldrei hafa
þurft að standa við eigin kenningar. Um einhvern orðróm sem var í
gangi um Hannes sagði Guðbjartur:
“Ég er hissa hvað fáir vita þetta því það vita þetta allir.”