A A A
  • 1993 - Heiðrún Arna Rafnsdóttir
22.03.2017 - 22:25 | Björn Ingi Bjarnason,Verkalýðsfélag Vestfirðinga,Vestfirska forlagið

Umsjónarmaður orlofsbyggðarinnar í Flókalundi

Orlofsbyggðin í Flókalundi.
Orlofsbyggðin í Flókalundi.

Enn er tækifæri til að senda inn umsóknir um starf umsjónarmanns í Flókalundi sem stjórn orlofsbyggðarinnar í Flókalundi auglýsir eftir. En óskað eftir að ráða umsjónarmann byggðarinnar í fullt starf frá og með 1. maí 2017 – 30. september 2017.  Stjórnin leitar eftir handlögnum einstaklingi eða samhentum hjónum sem hægt er að fela ýmis minniháttar viðhaldsverkefni ásamt öðrum tilfallandi störfum við Orlofsbyggðina í Flókalundi.

Orlofsbyggðin í Flókalundi er rekstrarfélag  um orlofsbústaði og sundlaugarsvæði sem eru í eigu stéttarfélaga víðsvegar af landinu.

Nánari upplýsingar um starfið og launakjör gefur Finnbogi Sveinbjörnsson,  á netfangið finnbogi@verkvest.is eða Eygló Jónasóttir  á netfangið eyglo@verkvest.is.

Öllum umsóknum verður svarað en stjórn orlofsbyggðar áskilur sér þann rétt að hafna öllum umsækjendum og auglýsa aftur ef enginn umsækjenda telst hæfur í starfið.

Umsóknarfrestur er til 25. mars næst komandi og þurfa umsóknir um starfið að hafa borist fyrir þann tíma á ofangreind netföng eða á Skrifstofu verkalýðsfélaganna, Pósthólf 60, 400 Ísafjörður



« Nóvember »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30