A A A
  • 1981 - Brynhildur Elín Kristjánsdóttir
  • 1995 - Alexander Almar Finnbogason
  • 1996 - Margrét Unnur Borgarsdóttir
29.10.2019 - 15:35 |

Umhverfislestin á Ísafirði

Þessa dagana er Umhverfislestin á ferðalagi um Vestfirði, en það er farandsýning sem haldin er á vegum Vestfjarðastofu. Hönnuður sýningarinnar er Ásta Þórisdóttir, hönnuður og listgreinakennari á Hólmavík þar sem farandsýningin hóf göngu sína. Næstu sýningar eru í félagsheimilinu á Patreksfirði 31. október og í Edinborgarhúsinu á Ísafirði laugardag, 2. nóvember. 

Sýningin fjallar um umhverfismál heimilanna á fjölbreyttan, fræðandi og skemmtilegan hátt, en þar gefst fólki tækifæri til að fræðast um stöðu loftslagsmála og annarra umhverfismála og hvaða aðgerða er þörf til að bregðast við. Markmiðið er að vekja athygli á þeim alvarleika sem blasir við í umhverfismálum en einnig að kynna fyrir fólki ýmsar lausnir og aðgerðir sem flestir geta auðveldlega tileinkað sér í daglegu lífi til að leggja sitt af mörkum.


Umhverfislestinni er ætlað að svara ýmsum spurningum eins og:

- Er rafbíll raunhæfur kostur fyrir Vestfirðina?
- Hvernig á að flokka rusl í minni heimabyggð?
- Hvort er verra fyrir umhverfið, íslenskt lambakjöt eða innflutt sojakjöt?
- Hvernig virka vindmyllur?
- Hvað er molta og af hverju skiptir máli að við flokkum lífrænan úrgang?
- Hvað getum við gert í tengslum við loftslagsvá heimsins?

Á sýningunni verður m.a. hægt að skoða og prófa tvinnbíl og rafhjól og spyrja sérfræðinga hvort það séu raunhæfir kostir fyrir Vestfirðinga. Á staðnum verður lítið reiðhjólaverkstæði og eru gestir hvattir til að taka með sér eigin hjól og fá aðstoð við viðgerð eða leiðbeiningar um viðhald. Vísindasmiðja Háskóla Íslands verður með vinnusmiðju þar sem orkuhugtakið verður skoðað og vindmyllur smíðaðar sem breyta vindorku í raforku.

Matreiðslumeistari fræðir fólk hvernig hægt er að sporna gegn matarsóun og dýrindis diskósúpa verður á boðstólnum fyrir alla ásamt því að hægt verður að kaupa umbúðalausar þurrvörur á staðnum sem og ýmsar umhverfisvænar lausnir fyrir heimilið svo fólk er hvatt til að mæta með ílát, krukkur og box til að kaupa í.

Sýningin fellur undir áhersluverkefni Umhverfisvottunar Vestfjarða og er styrkt af Sóknaráætlun Vestfjarða. Grafísk hönnun veggspjalda er eftir Áslaugu Baldursdóttur. 

Frekari upplýsingar má nálgast hér


« Desember »
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31