A A A
  • 1950 - Margrét Guðjónsdóttir
  • 1955 - Angantýr Valur Jónasson
23.08.2017 - 20:23 | Alþingi,Björn Ingi Bjarnason,Hallgrímur Sveinsson,Morgunblaðið,Vestfirska forlagið

Tuttugu ára saga tafa í Teigsskógi

Teigsskógur. Tafir á aðgerðum ræddar í umhverfis- og skipulagsnefnd Alþingis.
Teigsskógur. Tafir á aðgerðum ræddar í umhverfis- og skipulagsnefnd Alþingis.
„Það var farið yfir stöðuna og hvenær mætti vænta þess að eitthvað færi að hreyfast þarna,“ sagði Valgerður Gunnarsdóttir, formaður umhverfis- og samgöngunefndar.

Tafir á framkvæmdum við Teigsskóg voru á dagskrá fundar nefndarinnar í gær. Valgerður minnti á að tafir á lagningu vegar um Teigsskóg væru orðnar tuttugu ára löng saga. Hún sagði að fram hefði komið á fundinum að Vegagerðin gerði ráð fyrir að það gæti legið fyrir seinnipart næsta árs hvort og þá hvenær yrði hægt að hefja framkvæmdir.

„Það sem helst er athugavert, að mínu mati, er þessi gríðarmikla töf. Vestfirðingar eru ekki öfundsverðir af vegakerfi sínu. Við erum öll sammála um að eitthvað verði að fara að gerast í þessum málum,“ sagði Valgerður.
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30