A A A
  • 1926 - Jökull Sigtryggsson
  • 1946 - Katrín Eiríksdóttir
  • 1979 - Sólveig Eirný Sveinsdóttir
07.02.2017 - 14:25 | Vestfirska forlagið,Háskólinn á Akureyri,Björn Ingi Bjarnason

Þriðjudagsfyrirlestur í Ketilhúsinu: - Maður í mynd - myndefnið í minningunum um Jón forseta

Páll Björnsson var formaður Sagnfræðingafélags Íslands á árunum 2000 til 2004.
Páll Björnsson var formaður Sagnfræðingafélags Íslands á árunum 2000 til 2004.
« 1 af 2 »

Þriðjudaginn 7. febrúar 2017 kl. 17-17.40 heldur Páll Björnsson, prófessor í sagnfræði og nútímafræði við Háskólann á Akureyri, Þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu, Ketilhúsi undir yfirskriftinni Maður í mynd: Myndefnið í minningunum um Jón forseta. Aðgangur er ókeypis.

Á 20. öld varð Jón Sigurðsson að einu mikilvægasta sameiningartákni meðal Íslendinga. Þá gengu minningarnar um Jón í gegnum endurnýjun lífdaga með margvíslegum hætti, t.a.m. hátíðahöldum, sögusýningum, pílagrímastöðum, minnismerkjum, kveðskap, bókaútgáfu, minjagripum og myndverkum. Í fyrirlestrinum verður kastljósinu beint að hinu myndræna í þessari þróun, þ.e. hvernig myndefni hefur verið notað til þess að styrkja og viðhalda stöðu hans sem þjóðhetju.

Páll Björnsson lærði sagnfræði og heimspeki við Háskóla Íslands, stundaði framhaldsnám í sagnfræði við háskólana í Göttingen og Freiburg í Þýskalandi, og lauk síðan doktorsprófi í þeirri grein frá Rochester-háskóla í New York. Hann hefur einkum fengist við rannsóknir á þjóðerniskennd, frjálslyndisstefnunni og viðhorfum til kynjanna. Hann var ritstjóri tímaritsins Sögu 2003–2008 og hefur einnig sinnt félagsmálum, meðal annars sem formaður Sagnfræðingafélags Íslands á árunum 2000 til 2004.

Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Myndlistaskólans á Akureyri, Gilfélagsins, Menntaskólans á Akureyri, Myndlistafélagsins og Háskólans á Akureyri. Á meðal annarra fyrirlesara vetrarins eru Ingi Bekk, Katinka Theis og Immo Eyser, Rebekka Kuhnis, Aðalsteinn Þórsson, Susan Singer og Ingibjörg Sigurðardóttir.


« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30