A A A
  • 1950 - Margrét Guðjónsdóttir
  • 1955 - Angantýr Valur Jónasson
13.11.2016 - 22:12 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson

Svarta Gengið, saga um ást, dauða, bónda og fé

« 1 af 4 »

Í gær, laugardaginn 12. nóvember 2016, var frumsýnd í Bíó Paradís í Reykjavík kvikmyndin Svarta gengið.

Í kynninmgu myndarinnar segir svo:

Þorbjörn Pétursson fjárbóndi og einsetumaður að Ósi Arnafirði þurfti að bregða búi vegna slits og veikinda. Í kjölfarið neyddist hann til að fella allt sitt sauðfé. Þar á meðal var fjárhópur sem Þorbjörn kallaði Svarta Gengið og hafði alið sérstaklega. Svarta gengið stóð honum mjög nærri og ekki kom til greina að senda það í sláturhús.

Í kjölfarið ákvað Þorbjörn að heiðra minningu mállausra vina sinna með þeim hætti sem honum fannst við hæfi. Að jarðsetja þær heima og reisa yfir þær einstakan minnisvarða. Jafnframt sótti hann um leyfi yfirvalda að fá að hvíla þeim við hlið.

Tónlist Friðjón Guðlaugsson
Klipping: Kári G. Schram
Framleiðandi: Kári G. Schram
Titlar / grafík: Elísa Björk Schram

Framleiðslufyrirtæki: Moment Films

  • Tegund: Heimildamynd
  • Leikstjóri: Kári G. Schram
  • Handritshöfundur: Kári G. Schram
  • Ár: 2016
  • Lengd: 54 mín
  • Land: Ísland
  • Frumsýnd: 12. nóvember 2016
  • Tungumál: Íslenska með enskum texta
  • Aðalhlutverk: Þorbjörn Pétursson 
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30