Strompleikurinn á Núpi
Frá því er að segja að nokkrir fróðleiksþyrstir ferðamenn hafa verið að spyrjast fyrir um hvers vegna stóri strompurinn var reistur við nýja skólahúsið á Núpi. Bygging þessi var reist á tímum Arngríms Jónssonar skólastjóra um 1970. Engin smá smíði strompurinn sá sem sjá má á meðf. mynd.
Nú hafa þeir sem betur vita og muna frætt okkur um þetta mál.
Menn hugsuðu sér að á héraðsskólanum yrði allt sorp, tilfallandi sprek og þannig lagað brennt í miðstöð staðarins. Og nýtt þannig til að kynda skólahúsin. Spara stórfé í olíukaupum. Stóri strompurinn átti að koma þar við sögu í sambandi við reyk og annað. Þótti bara nokkuð snjallt. Gekk víst í nokkur ár. En svo var bannað að brenna sorp og þar með var strompleikurinn ekki lengur á sviðinu á Núpi. En strompurinn stendur áfram sem minnismerki og er notaður til að tengja loftnet við hann eins og sagt var í gamla daga og alls konar nútíma fjarskiptaþræði.