A A A
  • 2012 - Freyja Dís Hjaltadóttir
06.11.2016 - 21:48 | Hallgrímur Sveinsson,Vestfirska forlagið

Stjórnmálahringekjan: - Utanþingsstjórn í pípunum fyrir vestan ef á þarf að halda!

Utanþingsstjórn Björns Þórðarsonar. Talið frá vinstri: Björn Ólafsson, Björn Þórðarson, forseti Íslands Sveinn Björnsson, Vilhjálmur Þór, Einar Arnórsson. Jóhann Sæmundsson vantar á myndina. Ljósm.: frá Stjórnarráðinu.
Utanþingsstjórn Björns Þórðarsonar. Talið frá vinstri: Björn Ólafsson, Björn Þórðarson, forseti Íslands Sveinn Björnsson, Vilhjálmur Þór, Einar Arnórsson. Jóhann Sæmundsson vantar á myndina. Ljósm.: frá Stjórnarráðinu.

Nýjustu fréttir úr Fréttaveitunni á Þingeyri herma, að hreppsnefndirnar í Vestfirsku Ölpunum séu tilbúnar með utanþingsstjórn í bakhöndinni til að leggja fyrir forseta lýðveldisins. Ef stjórnarmyndun dregst á langinn hjá alþingismönnum, gæti farið svo að hann verði að grípa til slíkra ráð. Á það mun náttúrlega ekki reyna fyrr en í lengstu lög, en allur er varinn góður. Forsetar vorir hafa stundum verið með slíkar stjórnir uppi í erminni þegar baktjaldamakkið hefur gengið hægt.

   Þess er að minnast að það var utanþingsstjón Björns Þórðarsonar sem stóð formlega fyrir stofnum lýðveldis á Íslandi 17. júní 1944. Hún var eina utanþingsstjórnin í sögu Íslands til þessa. Sú stjórn starfaði í tæp tvö ár og stóð sig bara vel eins og margir muna.

Hreppsnefndirnar hafa samþykkt stefnuskrá utanþingsstjórnarinnar til framlagningar. Er hún trúnaðarmál eins og er. Samt skulu hér nefnd nokkur dæmi úr henni í stuttu máli:

  1. Aðskilja ber ríki og spillingu.
  2. Við verðum að hætta að bruðla.
  3. Bannað verði að henda mat.
  4. Öllum sem lepja dauðann úr skel skal hjálpa til sjálfshjálpar ef hægt er.
  5. Bankaleynd verði afnumin af peningahreyfingum yfir 100 milljónum króna.
  6. Allir ráðherrar stjórnarinnar eiga að segja nei þegar það á við.
  7. Niður með græðgina.
  8. Upp með hagsmuni almennings.

Ráðherrabílar skulu seldir. Ráðherrarnir aki að jafnaði í vinnuna á sínum eigin bílum. Eða fara bara gangandi. Ef nauðsyn krefur hringi þeir í leigubíl.

Ráðherralisti stjórnarinnar verður ekki birtur að sinni eins og skiljanlegt er. En þar verður valinn maður í hverju rúmi ef til kemur.


« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30