A A A
14.07.2015 - 13:15 | Blaðið - Vestfirðir

Spánverjavígin 1615

Frá opnun sýningarinnar um Spánverjavígin 1615.
Frá opnun sýningarinnar um Spánverjavígin 1615.
« 1 af 2 »

Laugardaginn, 4. júlí 2015, var opnuð sýning um Spánverjavígin 1615 í tilefni af því að 400 ár eru í haust liðin frá þessum hrottalegu vígum sem áttu sér stað í Ísafjarðardjúpi og Fjallaskaga í Dýrafirði.

Baskneski listamaðurinn Guillermo Zubiaga teiknar átta myndir sem sýna helstu atriði sögunnar. Sigrún Antonsdóttir skrifaði textann. Úlfur Kolka hannaði sýningarspjöldin. Baskavinafélagið á Íslandi stendur að sýningunni sem er aðgengileg á fjórum tungumálum, íslensku, basknesku, spænsku og ensku á vefnum http: // baskavinir.is/exhibition/

Gudrun Olafsdottir söngkona flutti nokkur lög við opnunina ásamt eiginmanni sínum, gítarleikaranum Francisco Javier Jáuregui. Þau gáfu út disk nýlega, þar sem má finna nokkur basknesk þjóðlög í útsetningum Javiers fyrir rödd, fiðlu og gítar og léku þau nokkur lög af diskinum.

Jónas Guðmundsson sýslumaður opnaði sýninguna.

 Viðburðurinn var í samstarfi við Edinborgarhúsið, Byggðasafn Vestfjarða, Vaxtarsamning Vestfjarða og Uppbyggingarsjóð Vestfjarða.

Blaðið Vestfirðir greinir frá.

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30