Palli El. í –Sjálfumgleði- á Selfossi
Menningar-Staður á Eyrarbakka fór í gær, þriðjudaginn 21. október 2014, upp að Ölfusá við Selfoss.
Um var að ræða svokallaða -sjálfumgleðiferð- en slikt hátterni er að færast í aukana síðustu; mánuði, misseri og ár.
Innihald slíkra ferða er að hitta mann og annan og hafa gaman af.
Komið var á þessa staði þar sem gestunum var gríðarlega vel tekið:
1. Hjólbarðaþjónusta Magnúsar Bergssonar við Gagnheiði á Selfossi
2. Félagsheimilið Tíbrá hjá Ungmennafélagi Selfoss við Selfossvöll
3. Fiskbúð Suðurlands við Eyraveg við á Selfossi
4. Húsasmiðjan við Eyraveg á Selfossi
5. Eldhúsið við Tryggvagötu á Selfossi
6. Sunnlenska Bókakaffið við Austurveg á Selfossi
Framan við Sunnlenska Bókakaffið á Selfossi var Kók-keyrslumaðurinn og Dýrfirðingurinn Páll S. Elíasson. Gleðihót hafa ætíð verið fylgifiskur Palla El. Og hann sogaðsit því auðveldlega inní „Sjálfumgleðina“
Menningar-Staður færði til myndar og myndaalbúm með 22 myndum er komið hér.
Smella á þessa slóð: http://menningarstadur.123.is/photoalbums/266316/