A A A
  • 1950 - Margrét Guðjónsdóttir
  • 1955 - Angantýr Valur Jónasson
06.11.2016 - 08:19 | Vestfirska forlagið,Stjórnarráðið

Ólína sækir um stöðu safnstjóra Listasafns Íslands

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir.
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir.

Umsóknarfrestur um stöðu safnstjóra Listasafns Íslands rann út mánudaginn 10. október sl. Mennta- og menningarmálaráðuneyti bárust 20 umsóknir um stöðuna, frá tólf konum og átta körlum.

Umsækjendur eru:

Ásdís Ólafsdóttir, forstöðumaður,

Auður Harpa Þórsdóttir, forstöðumaður,

Bjarni Bragason, listfræðingur,

Björg Erlingsdóttir, sviðsstjóri,

Eydís Björnsdóttir, MA í hagnýtri menningarmiðlun,

Gísli Þór Ólafsson, skjalavörður,

Halldóra Arnardóttir, listfræðingur,

Hanna Guðrún Styrmisdóttir, listrænn stjórnandi,

Hannes Sigurðsson, listfræðingur,

Hlynur Helgason, lektor,

Inga Jónsdóttir, safnstjóri,

Magnús Gestsson, listfræðingur,

Margrét Elísabet Ólafsdóttir, lektor,

Nura Silva, framkvæmdastjóri,

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, alþingismaður,

Rakel Pétursdóttir, deildarstjóri,

Sergio Sosa Servellon, forstöðumaður,

Stefano Rabolli Pansera, sýningastjóri,

Vala Gestsdóttir, framkvæmdastjóri,

Æsa Sigurjónsdóttir, dósent.

Miðað er við að mennta- og menningarmálaráðherra skipi í stöðuna til fimm ára frá og með 1. mars 2017, sbr. 12. gr. laga nr. 80/2012 og laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996.

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30