A A A
  • 2012 - Freyja Dís Hjaltadóttir
13.12.2009 - 13:55 | Tilkynning

Ný bók frá Vestfirska forlaginu

Matur og menning
Matur og menning
Út er komin hjá Vestfirska forlaginu bókin Matur og menning á suðursvæði Vestfjarða. Þar segir frá málþingi um þetta efni sem háð var í Félagsheimili Patreksfjarðar 24. maí 2008. Bók þessi sýnir svart á hvítu hluta hinnar miklu fjölbreytni sem er að finna í náttúruauðlindum og menningu Vestfjarða. Fjöldi ljósmynda er í bókinni. Magnús Ólafs Hansson var aðal hvatamaður að málþinginu og útgáfu bókarinnar, en fjöldi áhugafólks var honum til stuðnings eins og eftirfarandi efnisyfirlit bókarinnar sýnir:

 

Erla Hafliðadóttir:
Svartfugl og svartfuglsegg.

 

Anna Jensdóttir, Patreksfirði:
Hveitikökur - ómissandi með kjötinu.

 

Skjöldur Pálmason:
Steinbítur - feitur og fallegur.

 

María Óskarsdóttir, Patreksfirði:
Mataræði og aðbúnaður sjómanna fyrr á tímum.

 

Alda Davíðsdóttir, Patreksfirði:
Sjóræningjar á Vestfjörðum.

 

Úlfar Thoroddsen:
Náttúra og saga á sunnanverðum Vestfjörðum - hefðbundin sýn.

 

Hlynur Þór Magnússon:
Hlunnindi Breiðafjarðar og nýting þeirra.

 

Soffía M. Gústafsdóttir:
Hvalkjöt - steik sem bragð er að!

 

Hafsteinn Guðmundsson , Flatey á Breiðafirði:
Selur - hollt og gott bjargráð.

 

Ragnar Guðmundsson á Brjánslæk:
Sögustaðir og sérstakir viðburðir í Vestur-Barðastrandarsýslu.

 

Hlynur Þór Magnússon:
Séra Björn í Sauðlauksdal og kartöflurnar.

 

Guðbjartur Á. Ólafsson, fyrrv. skólastjóri:
Iðnskólahald á Patreksfirði í 40 ár.

 

Þorvaldur Friðriksson:
Skrímsli í sjó og vötnum.

 

Jón Kr. Ólafsson, Bíldudal:
Tónlistin eflir sálina.

 

Böðvar Þórisson hjá Náttúrustofu Vestfjarða:
Einstakt fuglalíf - fuglar í Barðastrandarsýslum.

 

Hjörleifur Guðmundsson:
Sjómannadagurinn á Patreksfirði.

 

Ragnar Guðmundsson á Brjánslæk:
Sagan endalausa.

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30