A A A
  • 1935 - Soffía Einarsdóttir
17.12.2017 - 11:46 | Björn Ingi Bjarnason,Bændablaðið,Hallgrímur Sveinsson,Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson.,Vestfirska forlagið

Ný bók að vestan: Allt þetta fólk – Þormóðsslysið 18. febrúar 1943

Þormóðsslysið 18. febrúar 1943 er mesta blóðtaka sem nokkurt íslenskt byggðarlag hefur orðið fyrir. Þá fórst 31 maður, þar af 9 konur og eitt barn. Í hópnum voru 6 hjón og pör, blómi samfélagsins á Bíldudal.

Líf heillar byggðar og flestra fjölskyldna þar gjörbreyttist og bar merki þess uppfrá því. Einstaklingar lifðu í skugga slyssins og báru á sál sinni sár sem aldrei greru um heilt.

Saga þessa fólks og örlaga þeirra birtist hér í heild sinni eftir öllum tiltækum heimildum sem og minningar höfundar og hugleiðingar. Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson hefur lifað með þessum minningum og að hvatningu úr hópi þeirra 56 barna sem fólkið lét eftir sig og mörgu barnabarna sem af þeim eru komin hefur hann ritað þessa bók.

Hér er fjallað um byggðarlagið sem fyrir áfallinu varð og farnað þess, æviágrip fólksins sem fórst, kringumstæður ferðalagsins, skipið Þormóð og siglingu þess, rannsókn skipstapans og deilurnar sem urðu í kjölfarið. Þá eru birt minningarorð um hin látnu sem birtust í blöðunum á sínum tíma.

Bókin geymir og fjölbreytt myndefni sem sýnir þau sem í hlut áttu og það sem varðar örlagaför þeirra. Hvernig hefur Þormóður getað farist með öllu þessu fólki? Þessi spurning lýsir vel viðbrögðunum við ótíðindunum sem og óhugnaði þeirra og er um leið grunnspurning bókarinnar.

 

 

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31