A A A
  • 1950 - Margrét Guðjónsdóttir
  • 1955 - Angantýr Valur Jónasson

Ný bók á ensku eftir séra Vigfús Ingvar Ingvarsson á Egilsstöðum, er komin út hjá Vestfirska forlaginu. Nefnist hún Travelling Safely in Iceland - Hearing the Land Speak. Í henni er margvíslegur fróðleikur fyrir erlent ferðafólk. Áhersla er lögð á sérstöðu Íslands sem ferðamannalands og þær áskoranir sem fylgja því að ferðast um landið – breytileg og stundum óblíð veðrátta, vegakerfi af misjöfnu tagi og ýmsar hættur og hindranir. Mörg alvarleg slys á erlendum ferðamönnum hérlendis tengjast einmitt ókunnugleika á aðstæðum. Höfundur hefur nokkuð fengist við leiðsögn erlendra ferðamanna og gert sér far um að tala við þá og heyra sjónarmið þeirra.

   Hrífandi náttúra Íslands er kynnt og leiðbeint er um umgengni við hana og grein gerð fyrir nokkrum sérkennum íslenskrar menningar og mannlífs. Í lokakaflanum er svo fjallað um íslenskt mál. Þar eru allmörg orð eða orðstofnar sem koma oft fyrir í örnefnum, útskýrð í máli og myndum. Dæmi: Lækjargata. Hvers vegna ber gatan það nafn? Þá er fjallað um ýmis skilti við veginn.

   Auk margvíslegra hagnýtra upplýsinga fyrir ferðafólk er í bókinni leitast við að fræða um tengsl náttúru, þjóðar og tungu hérlendis. Gamansamar og lýsandi teikningar eftir Ómar Smára Kristinsson greiða efninu leið til lesenda.

   Í stuttu máli: Hvernig eiga erlendir gestir að haga sér á Íslandi? Hagnýt ráð og leiðbeiningar á einu bretti. Bók sem líklega á sér ekki hliðstæðu á íslenskum bókamarkaði í dag. Í henni er að finna í samþjöppuðu formi nánast allt sem  erlendur ferðamaður þarf að vita um Ísland áður en hann leggur landið undir fót.

Hér er ekki fjallað um peninga. Né hvernig á að græða sem mest á ferðamönnunum. Sennilega hefðu margir Íslendingar einnig gott af að kynna sér þessa handhægu bók! 


« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30