A A A
  • 2012 - Freyja Dís Hjaltadóttir
28.10.2011 - 23:55 | JÓH

Námskeið í skartgripasmíði

Námskeiðið verður haldið á Þingeyri á sunnudaginn.
Námskeiðið verður haldið á Þingeyri á sunnudaginn.
Sunnudaginn 30. október næstkomandi verður haldið námskeið í skartgripasmíði á vegum Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða. Á námskeiðinu verða kenndar aðferðir við smíði á skartgripum, hvort sem er hringum, hálsfestum, eyrnalokkum, armböndum eða nælum. Þátttakendur koma til með að smíða einn skartgrip eftir eigin hönnun og gott væri að hver og einn kæmi með hugmyndir/teikningar að skartgrip með sér. Einnig verða kenndar ísetningar á steinum. Unnið verður með silfur og endurunnið silfur. Námskeiðið verður haldið í smíðastofu grunnskólans á Þingeyri. Kennari er Anna Dóra Ágústsdóttir smíðakennari. Nánari upplýsingar og skráning á vef Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða www.frmst.is og í síma 456 5025.
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30