A A A
  • 1981 - Berglind Hrönn Hlynsdóttir
Auglýst hefur verið eftir umsóknum í nýjan Uppbyggingarsjóð Vestfjarða. Uppbyggingarsjóður Vestfjarða er rekinn innan vébanda Sóknaráætlunar landshlutans og er í umsjón Fjórðungssambands Vestfirðinga. Sjóðurinn tekur við hlutverki Menningarráðs Vestfjarða og Vaxtarsamnings Vestfjarða og veitir styrki til menningarverkefna, atvinnuþróunar- og nýsköpunar. Uppbyggingarsjóður er hluti af samningi ríkis og Fjórðungssambands Vestfirðinga um Sóknaráætlun Vestfjarða 2015-2019. Í vor verður í fyrsta skipti úthlutað úr sjóðnum og er umsóknarfrestur til og með 30. apríl. Til ráðstöfunar í úthlutun eru um það bil 60 milljónir að þessu sinni, sem er svipuð upphæð og úthlutað var á grundvelli menningar- og vaxtarsamninga á síðasta ári.


Veittir verða stofn- og rekstrarstyrkir til menningarstofnana, verkefnastyrkir til menningarmála og verkefnastyrkir til atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefna. Nýbreytni er að hægt er að sækja um stærri styrki til lengri tíma en áður, allt að þremur árum. Skila verður umsóknum á þar til gerðu umsóknareyðublaði sem er að finna ásamt frekari upplýsingum og úthlutunarrreglum á vef Fjórðungssambands Vestfirðinga – www.vestfirdir.is.

Samþykkt hefur verið að árið 2015 verði litið sérstaklega til verkefna sem uppfylla eitt eða fleiri eftirfarandi skilyrða:
a) Verkefni sem efla nýsköpun og atvinnuþróun á svæðinu og stuðla að stofnun nýrra fyrirtækja sem byggja á nýsköpun, einnig vöru- og gæðaþróun í starfandi fyrirtækjum
b) Verkefni sem stuðla að nýsköpun, fjölbreytni og aukinni fagmennsku í menningarstarfi
c) Verkefni sem fjölga eða styðja við atvinnutækifæri á sviði lista og menningar
d) Verkefni sem efla samstarf á sviði menningarmála á svæðinu
e) Verkefni sem styðja við uppbyggingu og eflingu menningartengdrar ferðaþjónustu
f) Verkefni sem skapa viðskiptatækifæri og verðmæti á sviði skapandi greina
g) Verkefni sem skapa störf fyrir háskólamenntaðar konur eða stuðla að fjölbreyttari atvinnutækifærum fyrir ungt fólk á svæðinu

h) Atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni sem auka útflutningstekjur eða eru gjaldeyrisskapandi
i) Atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni á sviði líftækni
j) Verkefni sem byggja á samstarfi fyrirtækja og rannsóknaraðila, þ.m.t. háskólastofnana

Hægt er að hafa samband og senda umsóknir rafrænt á netfangið uppbygging@vestfirdir.is. Starfsmenn Fjórðungssambands Vestfirðinga veita ráðgjöf við gerð umsókna í Uppbyggingarsjóð og sama gildir um starfsmenn Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða.

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30