A A A
  • 1935 - Soffía Einarsdóttir
04.11.2011 - 17:31 | bb.is

Leikrit fyrir alla fjölskylduna

Frá æfingu á leikritinu. Mynd: Jóhanna Jörgensen Steinsdóttir.
Frá æfingu á leikritinu. Mynd: Jóhanna Jörgensen Steinsdóttir.
Leikritið „Höfrungur á sviði" verður frumsýnt á Þingeyri í kvöld. Leikritið fjallar um upphaf íþróttaiðkunnar á Þingeyri sem hófst 1885 og íþróttafélagið Höfrung sem var stofnað 1904 og er með elstu starfandi íþróttafélaga á landinu í dag. Elfar Logi Hannesson leikstjóri segir leikritið bráðfjörugt og gamansamt og sannarlega vera fyrir alla fjölskylduna. Sýningin er viðamikil. Fjórtán leikarar og þar af eru þrír ættliðir sem stíga á stokk, fjölmargir á bak við tjöldin og í allt koma um 30 manns að sýningunni.

„Gaman er að segja frá því að það er verið að vígja nýtt ljósaborð á sýningunni en Leikdeild Höfrungs var að kaupa ljósaborð og kastara þannig að nú er kominn fullkomin aðstaða fyrir leiksýningar á Þingeyri og líklegt að fleiri leiksýningar verði sýndar í Félagsheimilinu í framtíðinni enda er húsið með flottustu leikhúsum Vestfjarða," segir Elfar Logi.

Þetta er þriðja sýningin sem Leikdeild Höfrungs setur á svið hinar fyrri voru Dragedukken og í fyrra var settur á svið leikurinn Eikin ættar minnar.

 

Miðasölusími er 848 4055.

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31