A A A
  • 1935 - Soffía Einarsdóttir
26.11.2014 - 08:11 | BIB,Hallgrímur Sveinsson

Leikfangasmiðjan Alda á Þingeyri: Einn bíll á hverja 100 Íslendinga

Matthías Bjarnason samgönguráðherra með frumgerðina af Dúa. Myndin tók Hallgr. Sveinsson  á Fjórðungsþingi á Reykhólum.
Matthías Bjarnason samgönguráðherra með frumgerðina af Dúa. Myndin tók Hallgr. Sveinsson á Fjórðungsþingi á Reykhólum.

Þann 1. nóv. 1987 símar Hulda Sigmundsdóttir, fréttaritari Morgunblaðsins á Þingeyri, frétt til blaðsins .

Þar segir hún m. a. svo:

„Leikfangasmiðjan Alda hf. á Þingeyri hefur nú starfað í tvö og hálft ár. Þar hafa starfað að meðaltali 4 starfsmenn í fullu starfi þetta tímabil. Aðal framleiðsluvara fyrirtækisins hefur verið dýrfirski vörubíllinn Dúi, sem nú er framleiddur í þremur gerðum. Tvö þúsund og fjögur hundruð stykki hafa verið smíðuð af leikfangabílnum Dúa, eða um einn bíll á hverja hundrað Íslendinga.

   Þá hefur Leikfangasmiðjan Alda framleitt dúkkuvagna með gamla laginu, rugguhesta, kúluspil og nýja spilið Einmenning. Öll þessi leikföng eru úr tré sem og vörubíllinn Dúi.“ 

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31