16.11.2012 - 06:45 | BIB
Jóhannes Kristjánsson á Bókamessunni í Ráðhúsi Reykjavíkur á morgun 17. nóv. 2012 kl. 14:00
Á Bókamessunni í Ráðhúsi Reykjavíkur á morgun 17. nóvember 2012 kl. 14:00, undir liðnum Mishlýjar sögur að vestan, mun
Hlynur Þór Magnússon lesa úr bók sinni Mishlýjar örsögur að vestan, en það eru
gamansögur af Vestfirðingum lífs og liðnum, sem sumir kalla
sannar lygasögur.
Þar munu ýmsir aðrir merkismenn mæta. Jóhannes Kristjánsson frá Brekku á Ingjaldssandi verður heiðurs- og leynigestur Vestfirska forlagsins á staðnum og mun koma fram fyrir hönd nokkurra Vestfirðinga.
Svo verður dragspilið þanið í kaffistofu Ráðhússins. Allir hjartanlega velkomnir.