A A A
  • 1935 - Soffía Einarsdóttir
24.01.2017 - 08:30 | Björn Ingi Bjarnason,Jónshús í Kaupmannahöfn,Vestfirska forlagið

Halla og Hrannar ganga um Kaupmannahöfn, taka myndir og segja sögur

« 1 af 2 »

Í febrúar 2016 gengum við hjónin á slóðir Jóns Sigurðssonar. Vorum nýflutt í Jónshús og fannst viðeigandi að kynna okkur aðstæður sjálfstæðishetjunnar. Settum myndir á facebook og skrifuðum smá texta. Jónsgöngurnar urðu alls þrjár.

Okkur fannst þetta skemmtilegt, svo við ákváðum að nema ekki staðar við Jón, heldur halda áfram að ganga um hverfi borgarinnar, skoða byggingar og garða og fræðast um söguna. Í lok ársins höfðum við farið í tólf göngur.

Ansi margir hafa fylgst með og virðast hafa gaman af. Sem hefur komið okkur skemmtilega á óvart.

Markmiðið er halda áfram árið 2017, finna ný viðfangsefni, og reyna að ná göngu í hverjum mánuði.

Hér er yfirlit yfir göngurnar tólf sem við fórum í árið 2016.

Bestu kveðjur,

Halla og Hrannar.

 (12) Jólabærinn Kaupmannahöfn,desember 2016

(11) Strikið og gamli bærinn – suðurhlutinnaf miðaldarbænum, október 2016

(10) Latínuhverfið og Pissurennan– norðurhverfi miðaldarbæjarins, september 2016 

(9) Virkið og hafnarbakkinn,gamli tíminn og nýi tíminn, ágúst 2016

(8) Vesterbro – Vesturbrú, júlí2016

(7) Christianshavn –Kristjánshöfn, júní 2016

(6) 1000 metra radíus út fráJónshúsi, júní 2016

(5) Indre Østerbro – InnriAusturbrú, maí 2016

(4) Nørrebro – Norðurbrú, maí2016

(3) Á slóðum Jóns Sigurðssonar –þriðji hluti, apríl 2016

(2) Á slóðum Jóns Sigurðssonar – annarhluti, mars 2016

(1) Á slóðum Jóns Sigurðssonar –fyrsti hluti, febrúar 2016

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31