A A A
  • 1935 - Soffía Einarsdóttir
05.05.2016 - 21:53 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson

Gomma af nýjum fréttum úr Vestfirsku Ölpunum

Upphaf vegagerðar í Hrafnholum í Dýrafirði 1973. Ljósm. Elín Pálmadóttir.
Upphaf vegagerðar í Hrafnholum í Dýrafirði 1973. Ljósm. Elín Pálmadóttir.
« 1 af 2 »
  1. Snurvoðarbáturinn okkar, hann Egill, kom inn á sunnudagskvöld með 14,5 tonn. Fór til vinnslu í frystihúsi staðarins.
  2. Nú er byrjað að klæða húsið á Dýrhól að utan.
  3. Sauðburður byrjar ekki almennt fyrr en upp úr 10. maí. Þó eru nokkrar þegar bornar eins og gengur. Í Fellasókn er burður þó kominn vel á veg.
  4. Strandveiðar eru byrjaðar. Tveir bátar róa til að byrja með frá Þingeyri. Svo fjölgar.
  5. Þokkalegt hljóð er í grásleppukörlunum. Afli nokkuð góður. Verð mætti vera hærra og það miklu hærra eins og gengur.
  6. Stjáni og Ólafía fóru suður í fyrradag akandi á sínum fjallabíl.
  7. Það er ekkert að frétta úr blokkinni.
  8. Hrafnseyrarheiði, sem sumir leyfa sér að kalla Grímsheiði, hvernig sem á því stendur, er ófær upp á hvern dag. Stanslaus mokstur hjá Gunnsa okkar og endalausar reddingar hjá björgunarsveitinni. Hvar endar þetta?
  9. Búið er að opna veginn út í Keldudal og út að Hrafnholum.
  10. Arnarfjarðarmegin er enn aur- og snjóskriða á miðjum Baulhúsaskriðum. Er það alveg fastur liður eftir veturinn. Að öðru leyti stendur vegurinn þar eins og stafur á bók. Fara menn ekki lengra akandi þeim megin að sinni.
  11. Grunur leikur á að þrír menn á Þingeyri hafi um skeið fyrir og eftir „hið svokallaða hrun“ stundað viðskipti með aflandskrónur á aflandseyjum. Hefur það komið fram, að þeir muna ekki á hvaða eyjum þetta var né hvers konar viðskipti þetta voru. Þessir aflandseyjaskeggjar segjast þó muna að þeir greiddu alla skatta og skyldur af viðskiptunum í ríkissjóð Íslands. Málið er í rannsókn hjá hreppstjóra Auðkúluhrepps.
  12. Dýrvitlaust veður var í Dýrafirði á mánudagsnóttina eð var.
« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31