A A A
  • 2012 - Freyja Dís Hjaltadóttir
Starfsstöð Vísis á Þingeyri.
Starfsstöð Vísis á Þingeyri.
Útgerðarfyrirtækið Vísir rekur starfsstöðvar í öllum landsfjórðungum, á Djúpavogi, Þingeyri, Húsavík og í Grindavík. Starfsmenn eru samtals um 300 og aflaheimildir fyrirtækisins nema um 11.500 þorskígildistonnum. Vísir gerir út fimm beitningarbáta, sem allir hafa verið mikið endurnýjaðir á undanförnum árum. Pétur H. Pálsson framkvæmdastjóri Vísis segir ljóst að frumvörp ríkisstjórnarinnar um stjórn fiskveiða vegi að samkeppnishæfni sjávarútvegsins, nái þau fram að ganga. „Við skulum ekki gleyma því að samkeppnin á alþjóðlegum mörkuðum er hörð. Með þessum boðuðu frumvörpum er verið að setja greinina í mikla óvissu til lengri tíma. Það er verið að tala um að nýtingarleyfi á kvóta verði upphaflega 15 ár en leyfishafar eigi rétt á viðræðum um framhald á miðju tímabilinu, hvað sem það nú þýðir. Ég er ansi hræddur um að fyrirtækin dragi tiltölulega fljótt úr nauðsynlegum fjárfestingum, sem leiði á endanum til þess að við lendum aftarlega á merinni í hinni alþjóðlegu samkeppni með tilheyrandi afleiðingum fyrir þjóðarbúið."

 

Vísir greiddi í fyrra um 100 milljónir í veiðigjald til ríkissjóðs. Eins og fyrr segir gerir Vísir út fimm beitningarbáta. „Við erum stærsta línuútgerðarfyrirtæki landsins og höfum nýtt okkur allar helstu tækninýjungar á sviði línuveiða. Ríkisstjórnin vill greinilega halda áfram að nota svokallaða potta til að umbuna þeim sem nota gömlu aðferðina, handbeitningu, af því að þannig verði til fleiri störf. Það væri einfalt að eyða atvinnuleysi á landinu ef þessi aðferð væri notuð víðar. Við gætum t.d. bannað lyftara, flökunarvélar, mjaltavélar og skurðgröfur. Þetta er hættulegur hugsunarháttur. Það að ekkert er gert með skoðanir manna úr greininni ásamt því að þetta er sett fram án þess að niðurstaða liggi fyrir um hagræna úttekt á afleiðingunum segir í raun allt sem segja þarf um markmið þessar frumvarpa," segir Pétur H. Pálsson framkvæmdastjóri Vísis.

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30