Frá aðalfundi Búnaðarfélags Auðkúluhrepps: - „Hægt er með ótrúlegum árangri að rækta bleikju og regnbogasilung í ísköldum bæjarlæknum“
Eftirfarandi ályktanir gerði fundurinn um atvinnumál:
Fiskeldi
Fundurinn óskar fiskeldismönnum bæði á Vestfjörðum sem annarsstaðar, gæfu og gengis. Samt varar hann við því að menn fari of bratt í fjárfestingum og uppbyggingu og reisi sér hurðarás um öxl. Sígandi lukkan er best. Huga þarf mjög vel að því vistkerfi sem fyrir er í hinum vestfirsku fjörðum. Það hefur verið sannað, að hægt er með ótrúlegum árangri að rækta bleikju og regnbogasilung í hinum ísköldu vestfirsku ám og vötnum. Meira að segja í bæjarlæknum. Hér gæti orðið um vistvæna vestfirska stóriðju að ræða á landi ef menn vilja.
Óveiddur fiskur í sjónum
Ef ekkert er fast í hendi með útveg frá vissum stöðum, hrörnar byggðin. Þar duga ekki neinar gustuka- eða miskunnarúthlutanir. Þetta vita allir. Ef menn vilja breyta þessu verðum við að afhenda þessum stöðum aðgang að óveiddum fiski í sjónum til frambúðar. Svo einfalt er það.
Dýrafjarðargöng og Dynjandisheiði
Þá samþykkti fundurinn að færa stjórnvöldum þakkir fyrir fyrirhugaðar framkvæmdir við Dýrafjarðargöng og Dynjandisheiði.