A A A
  • 1981 - Brynhildur Elín Kristjánsdóttir
  • 1995 - Alexander Almar Finnbogason
  • 1996 - Margrét Unnur Borgarsdóttir
29.10.2011 - 12:29 | JÓH

Fjölskyldutími í Íþróttahúsinu

Frá leikjadegi í Íþróttahúsinu. Mynd: JÓH
Frá leikjadegi í Íþróttahúsinu. Mynd: JÓH
Frá og með næstkomandi sunnudegi mun íþróttafélagið Höfrungur bjóða upp á fjölskyldutíma í Íþróttahúsinu, milli kl. 10:00 og 12:00. Þá gefst foreldrum og forráðamönnum kostur á að mæta með börnin og hreyfa sig saman. Íþróttaiðkendum er frjálst að nota áhöld Íþróttamiðstöðvarinnar að vild, að tækjasalnum undanskildum, gegn því að hver gangi frá eftir sig. Vakin er athygli á því að ekki er ætlast til þess að börnin séu skilin eftir án ábyrgðarmanns (18 ára eða eldri), og eru þátttakendur minntir á að skrá sig í afgreiðslunni við komuna. Mætum öll og höfum gaman saman!
« Desember »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31