A A A
  • 1965 - Björnfríður Fanney Þórðardóttir
  • 1966 - Jónína Kristín Sigurðardóttir
  • 2001 - Jóhanna Gabriela Lecka
Lið Ísfirðinga. Hjördís Hjartardóttir, Unnar Reynisson og Ólína Þorvarðardóttir.
Lið Ísfirðinga. Hjördís Hjartardóttir, Unnar Reynisson og Ólína Þorvarðardóttir.

Spurningakeppni átthagafélaganna hófst í síðustu viku og í kvöld, 26. feb. 2015,  ætlar Ísfirðingafélagið að etja kappi við Félag Djúpmanna og Vopnfirðingafélagið. Viðureignin fer fram í Breiðfirðingabúð í Reykjavík og hefst kl. 20. Í liði Ísfirðinga eru Hjördís Hjartardóttir, Unnar Reynisson og Ólína Þorvarðardóttir en þau stefna leynt og ljóst að miklum árangri í keppninni. Ísfirðingar á suðvesturhorninu eru hvattir til að mæta með vini og vandamenn og hvetja sitt fólk. 

Önnur lið sem keppa annað kvöld eru Siglfirðingafélagið á móti Átthagafélagi Héraðsmanna, síðan Skaftfellingafélagið, Breiðfirðingafélagið og Barðstrendingafélagið og loks Félag Álftfirðinga og Seyðfirðinga vestra, Bolvíkingafélagið og Átthagafélag Vestmanneyinga. Af þeim nítján liðum alls sem etja kappi í spurningakeppninni eru tíu frá Vestfjörðum. 

 

Lið Dýrfirðingafélagsins komst áfram í síðustu viku með sigri á liði Patreksfirðingafélagsins. Önnur lið átthagafélag af Vestfjörðum komust ekki áfram í undanrásunum fyrir viku.

« Nóvember »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30