A A A
  • 1964 - Hermann Drengsson
23.09.2017 - 06:57 | bb.is,Björn Ingi Bjarnason,Fjórðungssamband Vestfirðinga,Hallgrímur Sveinsson,Vestfirska forlagið

FORSÆTISRÁÐHERRA MÆTIR Á ÍBÚAFUND Á ÍSAFIRÐI

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra hefur boðað komu sína á fyrirhugaðan íbúafund á Ísafirði á sunnudaginn 24. september 2017 kl. 14:00 í Íþróttahúsinu á Torfnesi. Samkvæmt heimildum bb.is hefur það ekki gerst áður að forsætisráðherra mæti á opinn íbúafund á Ísafirði, nema hugsanlega fundi sem haldin er af eigin stjórnmálaflokki.

Áður hefur komið fram að framsögumenn eru Pétur Markan formaður Fjórðungssambands Vestfirðinga, Eiríkur Örn Norðdahl, Guðrún Finnbogadóttir og Gunnar Tryggvason.

Í pallborði á fundinum verða :

  • Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra,
  • Jón Gunnarsson, ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála,
  • Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, ráðherra sjávarútvegs- og landbúnaðarmála,
  • Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar.
  • Gunnar Tryggvason, KPMG.
  • Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands.
  • Jón Páll Hreinsson bæjarstjóri Bolungarvíkurkaupstaðar
  • Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar
  • Pétur G. Markan sveitarstjóri Súðavíkurhrepps og formaður Fjórðungssambands Vestfirðinga
  • Indriði Indriðason sveitarstjóri Tálknafjarðarhrepps
  • Friðbjörg Matthíasdóttir, starfandi bæjarstjóri Vesturbyggðar
  • Ingibjörg Birna Erlingsdóttir sveitarstjóri Reykhólahrepps
  • Eva Sigurbjörnsdóttir oddviti Árneshrepps

Ráðherrar og formaður Náttúrusamtaka Íslands munu hafa stutt innlegg fyrir pallborðsumræður og fulltrúar sveitafélaga munu svo sitja fyrir svörum.


« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30