Einstakri list gerð skil
„Þetta sérstaka form leiklistarinnar á sér langa og merka sögu hér á landi. Síðustu ár hefur einleikjaformið verið áberandi í vestfirsku leikhúslífi en þar starfar Kómedíuleikhúsið sem hefur sett upp fjölmarga einleiki síðasta áratuginn og einnig er árlega haldin sérstök einleikjahátíð Act alone í Haukadal og Ísafirði," segir í tilkynningu. Saga einleikjalistarinnar er sögð á stórum söguspjöldum en einnig eru til sýnis kynningarefni um einleiki á Íslandi s.s. leikskrár sem og handrit einleikja og marskonar einleikin fróðleikur um einleiksformið.
Ýmis varningur er til sölu á sýningunni s.s. bókin Einfarar í íslenskri myndlist á ensku, Þjóðlegar hljóðbækur og fjölbreytt handverk frá ömmu og afa barni listahjónanna á Hofi, Marsbil G. Kristjánsdóttur. Sýningin opnar kl.14 á föstudag og eftir það verður sýningin opin frá kl.14-16 allt til sunnudagsins 24. júlí. Aðgangur er ókeypis.