A A A
  • 1926 - Jökull Sigtryggsson
  • 1946 - Katrín Eiríksdóttir
  • 1979 - Sólveig Eirný Sveinsdóttir
09.11.2011 - 22:04 | JÓH

Dýrfirðingum færðar þakkir

Mikil ánægja var framlag Dýrfirðinga til uppskeruhátíðar Ferðamálasamtaka Vestfjarða.
Mikil ánægja var framlag Dýrfirðinga til uppskeruhátíðar Ferðamálasamtaka Vestfjarða.
Uppskeruhátíð Ferðamálasamtaka Vestfjarða fór fram í Dýrafirði þann 15. október síðastliðinn. Á heimasíðu samtakanna fer formaður þeirra, Sigurður Atlason, hlýjum orðum um Dýrfirðinga og þakkar kærlega fyrir þær móttökur sem hópurinn fékk þennan dag. Þar segir meðal annars: "Það var vel hugsað um hópinn hvar sem hann kom og einkar ánægjulegt fyrir okkur öll að kynnast því svona rækilega hvað Dýrafjörður hefur upp á mikið að bjóða og hversu vel er vandað til verka. Það er ekki síður uppörvun og hvatning til allra þeirra sem tóku þátt í ferðinni." Dagskrá hátíðarinnar var þétt og hópurinn kom víða við, en henni lauk með mikilli veislu á Hótel Núpi um kvöldið. Hér má lesa kveðjuna til Dýrfirðinga í heild sinni.

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30