A A A
  • 1935 - Soffía Einarsdóttir
Frá fyrstu Spurningakeppni átthagafélaga sem var árið 1998.
Frá fyrstu Spurningakeppni átthagafélaga sem var árið 1998.
« 1 af 8 »

Dregin voru saman lið í Spurningakeppni átthagafélaga á fundi í veitingahúsinu Cafe Catalina í Kópavogi.

 

16 átthagafélög keppa og eru tvær forkeppnir dagana 28. febrúar og 7. mars.

Eftir keppnina 7. mars verða svo liðin 8 sem komast áfram þessi tvö kvöld dregin saman.

8 liða úrslitin verða 21. mars  - 4 liða úrslit verða 11. apríl

Úrslitakeppnin fer fram síðasta vetrardag, 24. apríl og verður dansleikur að lokinni keppni.

Allar keppnirnar verða í Breiðfirðingabúð að Faxafeni 14 í Reykjavík og hefjast kl. 20:00 en húsið opnar kl. 19:30

 

Dregið var um hverjir keppa og hvenær í 16 liða úrslitunum og raðast það svona:

 

28. febrúar:
Skaftfellingafélagið - Átthagafélag Djúpmanna
Húnvetningafélagið - Átthagafélag Sléttuhrepps
Önfirðingafélagið - Árnesingafélagið
Stokkseyringafélagið - Dýrfirðingafélagið

7. mars:
Barðstrendingafélagið - Breiðfirðingafélagið
Súgfirðingafélagið - Átthagafélag Strandamanna
Átthagafélag Héraðsmanna - Vestfirðingafélagið
Siglfirðingafélagið - Norðfirðingafélagið

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31